Sigurvon á ferðinni
Í dag var Sigurvon færð frá Gufunesi og í Trefja í Hafnarfirði þar sem taka á skútuna í gegn næstu tvær vikurnar. Sjálfboðaliðar sem vilja taka þátt í viðgerðinni og læra á viðgerðir af þessu tagi geta sent póst á brokey@brokey.is en gert er ráð fyrir að unnið verði dag og kvöld. Umsjón með verkinu hefur Maciej Bauer.