Íslandsmót kjölbáta 2016 – Úrslit
Það var áhöfnin á Bestu sem sigraði Íslandsmót kjölbáta 2016, og það með nokkrum yfirburðum, en fyrri Íslandsmeistarar á Dögun og Skeglu veittu þeim harða samkeppni. Mótið fór fram dagana 10.-14. ágúst og sigldar alls átta umferðir. Vindur hélst góður allan tímann. Tíu áhafnir tóku þátt og keppnin var hörð frá upphafi til enda.
Úrslitin urðu eftirfarandi:
- Besta, 10 stig (Brokey)
- Dögun, 21,5 stig (Brokey)
- Skegla, 24 stig (Þytur)
Áhöfnin á bestu, f.v. Siggi Óli, Ólafur Már, Baldvin og Emil.
Keppnisstjórn var skipuð þeim Jóni Pétri Friðrikssyni, Kai Logemann og Ben Mohney sem leystu hlutverk sitt með prýði. Gunnar Haraldsson sá um landstjórn. Góð stemning ríkti á Ingólfsgarði lokakvöldið á laugardag og skemmtu allir sér hið besta.
Áhönin á Dögun, f.v. Magnús Waage og Magnús. Á myndina vantar Þórarinn
Áhöfnin á Skeglu, f.v. Gunnar, Ragnar, Friðrik. Á myndina vantar Gunnar og Rúnar