Bart’s Bash 2016
Í samstarfi við SÍL og Andrew Simpson Sailing Foundation ætlar Brokey að halda Bart’s Bash-keppni á Íslandi þann 17. september næstkomandi.
Ætlunin er að hafa skipstjórafund kl. 10 og 1. flaut kl. 11. Skráning fer fram á vefsíðu Bart’s Bash. Ekki þarf að greiða skráningargjald en þátttakendur eru hvattir til að gefa í söfnun sem fer fram samhliða mótinu og verður féð notað til að styrkja m.a. siglingar með fötluðum börnum og unglingum sem eiga um sárt að binda.