Laugardaginn 8. október fór fram Lokabrok siglingamanna hjá Siglingafélagi Reykjavíkur – Brokey. Áhöfnin á Aquarius sá um veisluna og gerði það með miklum sóma. Þemi kvöldsins var í anda hinnar suðurþýsku októberhátíðar, grillaðar voru pylsur (Frankfurter og Brattwurst) frá Pylsumeistaranum og boðið upp á góðgæti sem á ættir sínar að rekja til Þýskalands. Eftir harða keppni á þriðjudögum í sumar