Faxaflóamót – NOR

/ júní 22, 2011

 

Brokey býður til Faxaflóamóts næstu helgi 24. – 25. júní 2011. Faxaflóamótið á sér áratugalanga sögu og er einn af hápunktum siglingasumarsins. Keppnin skiptist í tvennt: sigldur er sprettur upp á Akranes fyrri daginn (Skagabikarinn)  og er gert ráð fyrir því að startið verði klukkan 18:00. Seinni daginn verður svo keppt til baka flóknari leið. Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í hvorri keppni og síðan verðlaun fyrir samanlagðan árangur. Samanlagður árangur í báðum keppnum veitir stig til Íslandsbikarsins.  


 


Faxaflóamót

24. – 25. Júní 2011

Haldið af Siglingafélagi Reykjavíkur – Brokey

TILKYNNING UM KEPPNI

1 Reglur
Keppt verður samkvæmt:
    a) Kappsiglingareglum ISAF 2009 til 2012
    b) Kappsiglingafyrirmælum SÍL
    c) Kappsiglingafyrirmælum mótsins

2 Þátttökuréttur
Rétt til þátttöku hafa fullgildir félagar í siglingafélögum samkvæmt móta- og keppendareglum SÍL.

3 Auglýsingar
Auglýsingar eru leyfðar samkvæmt flokki C í Alþjóðakappsiglingareglunum.

4 Forgjöf
Keppt er samkvæmt IRC-forgjöf og skulu allir bátar framvísa gildu mælibréfi fyrir keppni. Bátar sem ekki eru með gilda IRC-forgjöf eru velkomnir með sem gestakeppendur, verða mældir og reiknaðir út frá líklegri IRC forgjöf, en koma ekki til álita við verlaunaúthlutun. 

5 Skráning
Skráningar skulu berast til keppnisstjórnar fyrir kl. 21:00 23. júní með athugasemdum við viðkomandi frétt á brokey.is eða með því að hringja í keppnisstjóra (sjá grein 13). Taka þarf fram nafn báts, nafn skipstjóra, fjölda áhafnarmeðlima, seglanúmer, forgjöf og félag sem keppt er fyrir. Sé bátur skráður seinna hækkar þáttökugjald um 2000 kr. 

6 Þátttökugjald
Þátttökugjald á hvern bát er kr. 5.000.,og greiðist fyrir keppni á skipstjórafund.

7 Keppnisbrautir
Siglt verður í einum spretti til Akraness fyrri daginn en flóknari braut seinni daginn. Brautir verða kynntar á skipstjórnarfundum fyrir hvora keppni.

 

8 Tímaáætlun

24. júní
    Skipstjórnarfundur í félagsheimili Brokeyjar á Ingólfsgarði kl. 17:15
    Fyrsta rásmerki frá Reykjavík kl. 17:55
    Hugsanlega verður startað í fleiri en einum forgjafarflokki
25. júní
    Skipstjórnarfundur, Akraneshöfn kl. 9:30 
    Fyrsta rásmerki frá Akranesi kl. 9:55.

Ef veður leyfir ekki keppni 24. júní verður öll keppnin haldin 25 júní og aðlöguð að aðstæðum.


9 Stigakerfi

Notað verður lágstigakerfi samkvæmt viðauka A í Alþjóðakappsiglingareglunum.

10 Ábyrgð og tryggingar
Allir sem taka þátt í mótinu gera það á eigin ábyrgð. Keppnisstjórn ásamt öllum þeim sem taka þátt í framkvæmd mótsins firra sig allri ábyrgð gagnvart tjóni sem kann að verða vegna þátttöku í mótinu. Hver bátur skal vera tryggður með gildri ábyrgðartryggingu sem nær til þess tjóns sem orðið getur.

11 Verðlaun

Fyrir fyrri keppnisdaginn Reykjavík – Akranes, Sprettur verður veittur Skagabikarinn og verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin. Fyrir seinni legginn Akranes – Reykjavík, verður veittur bikar og verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin. Fyrir samanlagðan árangur verður veittur bikar og verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin. Samanlagður árangur veitir stig til Íslandsbikars.

12 Verðlaunaafhending
Verðlaun verða afhent strax eftir lok mótsins í félagsheimili Brokeyjar.

13 Frekari upplýsingar

Frekari upplýsingar gefur Magnús Waage í síma 867 8367.

 

 

Share this Post