Faxaflóamótið – Tilkynning um keppni

/ júní 20, 2010

Brokey býður til Faxaflóamóts næstu helgi 25. – 26. júní 2010. Faxaflóamótið á sér áratugalanga sögu og er einn af hápunktum siglingasumarsins. Keppnin skiptist í tvennt: sigldur er sprettur upp á Akranes fyrri daginn (Skagabikarinn)  og er gert ráð fyrir því að startið verði klukkan 18:00. Seinni daginn verður svo keppt til baka flóknari leið. Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í hvorri keppni og síðan verðlaun fyrir samanlagðan árangur. Samanlagður árangur í báðum keppnum veitir stig til Íslandsbikarsins.

Myndin er frá mótinu 2007, sællar minningar.

Smellið á ‘nánar’ til að skoða tilkynningu um keppni.

Faxaflóamót

25. – 26. Júní 2010

Haldið af Siglingafélagi Reykjavíkur – Brokey
á Faxaflóa og innfjörðum

TILKYNNING UM KEPPNI

1 Reglur
Keppt verður samkvæmt:
    a) Kappsiglingareglum ISAF 2009 til 2012
    b) Kappsiglingafyrirmælum SÍL
    c) Kappsiglingafyrirmælum mótsins

2 Þátttökuréttur
Rétt til þátttöku hafa fullgildir félagar í siglingafélögum samkvæmt móta- og keppendareglum SÍL.

3 Auglýsingar
Auglýsingar eru leyfðar samkvæmt flokki C í Alþjóðakappsiglingareglunum.

4 Forgjöf
Keppt er samkvæmt IRC-forgjöf og skulu allir bátar framvísa gildu mælibréfi fyrir keppni.

5 Skráning
Skráningar skulu berast til keppnisstjórnar fyrir kl. 21:00 24. júní með athugasemdum við viðkomandi frétt á brokey.is eða með því að hringja í keppnisstjóra (sjá grein 13). Taka þarf fram nafn báts, nafn skipstjóra, fjölda áhafnarmeðlima, seglanúmer, forgjöf og félag sem keppt er fyrir.

6 Þátttökugjald
Þátttökugjald á hvern bát er kr. 5.000.,og greiðist fyrir keppni á Skipstjórafund.

7 Tímaáætlun
25. júní
    Skipstjórnarfundur í félagsheimili Brokeyjar á Ingólfsgarði kl. 17:15
    Fyrsta rásmerki frá Reykjavík kl. 17:55
    Hugsanlega verður startað í fleiri en einum forgjafarflokki
26. júní
    Skipstjórnarfundur, Akraneshöfn kl. 9:00
    Fyrsta rásmerki frá Akranesi kl. 9:55.

8 Keppnisbrautir
Siglt verður í einum spretti til Akraness fyrri daginn en flóknari braut seinni daginn. Brautir verða kynntar á skipstjórnarfundum fyrir hvora keppni.

9 Stigakerfi

Notað verður lágstigakerfi samkvæmt viðauka A í Alþjóðakappsiglingareglunum.

10 Ábyrgð og tryggingar
Allir sem taka þátt í mótinu gera það á eigin ábyrgð. Keppnisstjórn ásamt öllum þeim sem taka þátt í framkvæmd mótsins firra sig allri ábyrgð gagnvart tjóni sem kann að verða vegna þátttöku í mótinu. Hver bátur skal vera tryggður með gildri ábyrgðartryggingu sem nær til þess tjóns sem orðið getur.

11 Verðlaun

Fyrir fyrri keppnisdaginn Reykjavík – Akranes, Sprettur verður veittur Skagabikarinn og verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin. Fyrir seinni legginn Akranes – Reykjavík, verður veittur bikar og verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin. Fyrir samanlagðan árangur verður veittur bikar og verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin. Samanlagður árangur veitir stig til Íslandsbikars.

12 Verðlaunaafhending
Verðlaun verða afhent strax eftir lok mótsins í félagsheimili Brokeyjar.

13 Frekari upplýsingar

Frekari upplýsingar fást hjá keppnisstjóra, Kjartani Ásgeirssyni í síma 698 7373.

 

Share this Post