Hátíð hafsins!

/ maí 29, 2013

Að venju stendur Brokey fyrir skemmtilegri siglingakeppni á Hátíð hafsins næstkomandi laugardag. Skipstjórnarfundur í hádeginu og vonandi jafnglimrandi fínt veður og í fyrra. Smellið á „Nánar“ til að skoða tilkynningu um keppni.

Hátíð hafsins

1. júní 2012

Haldið af Siglingafélagi Reykjavíkur – Brokey

TILKYNNING UM KEPPNI OG SKRÁNING

1 Reglur
Keppt verður samkvæmt:
    a) Kappsiglingareglum ISAF 2013 til 2017
    b) Kappsiglingafyrirmælum SÍL
    c) Kappsiglingafyrirmælum mótsins

2 Þátttökuréttur

Rétt til þátttöku hafa fullgildir félagar í siglingafélögum samkvæmt móta- og keppendareglum SÍL.

3 Auglýsingar
Auglýsingar eru leyfðar samkvæmt flokki C í Alþjóðakappsiglingareglunum.

4 Forgjöf
Keppt er samkvæmt IRC-forgjöf og skulu allir bátar framvísa gildu mælibréfi fyrir keppni.

5 Skráning
Skráningar skulu berast til keppnisstjórnar fyrir kl. 21:00 31. maí með athugasemdum við viðkomandi frétt á brokey.is.

Taka þarf fram nafn báts, nafn skipstjóra, fjölda áhafnarmeðlima, seglanúmer, forgjöf og félag sem keppt er fyrir.

6 Þátttökugjald
Ekket þátttökugjald.

7 Keppnisbraut
Keppt verður á sundunum við Reykjavík. Keppnisbraut verður kynnt á skipstjórnarfundi.

Sigld verður ein umferð.

Keppnisstjórn getur stytt braut meðan á keppni stendur. Tilkynning um slíkt fer fram í VHF-talstöð á rás 6.

Ef ræst er innan Reykjavíkurhafnar er eðlileg stefna beint út um hafnarkjaftinn. Bátar skulu ekki lúffa (regla 11) eða beita kappsiglingareglum með öðrum hætti til að sigla í veg fyrir aðra eða neyða þá til stefnubreytingar að óþörfu heldur sigla beint út um hafnarkjaftinn og gefa öðrum rúm til þess sama. Þegar aftasti hluti aftara báts, báta sem skarast, er kominn út fyrir hafnarkjaftinn þá gilda kappsiglingareglurnar með eðlilegum hætti.

8 Tímaáætlun
Afhending kappsiglingafyrirmæla frá kl. 12:30 – 13:00.

Skipstjórnarfundur í félagsheimili Brokeyjar á Ingólfsgarði kl. 13:00

Viðvörunarmerki kl. 13:55

9 Ábyrgð og tryggingar
Allir sem taka þátt í mótinu gera það á eigin ábyrgð. Keppnisstjórn ásamt öllum þeim sem taka þátt í framkvæmd mótsins firra sig allri ábyrgð gagnvart tjóni sem kann að verða vegna þátttöku í mótinu. Hver bátur skal vera tryggður með gildri ábyrgðartryggingu sem nær til þess tjóns sem orðið getur.

10 Verðlaun
Veitt verða  verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin.

11 Verðlaunaafhending
Verðlaun verða afhent strax eftir lok keppni í félagsheimili Brokeyjar.

12 Veitingar
Eftir verðlaunaafhendingu  verður boðið upp á vöfflur og kaffi í félagsheimili Brokeyjar.

13  Frekari upplýsingar
Frekari upplýsingar eru veittar á brokey@brokey.is

Share this Post