Kænunámskeið 2010

/ febrúar 17, 2010

Haldin verða námskeið og æfingar fyrir krakka á aldrinum 10-15 ára. Mikil áhersla verður lögð á siglingaíþróttina á þessum námskeiðum. Eftir námskeið gefst tækifæri á reglulegum æfingum til skemmtunar eða keppni.

SIGLINGANÁMSKEIÐ
Kænur – virka daga kl. 11.00–16.00
Námskeiðstími: 5 dagar
Staðsetning: Brokey, Nauthólsvík

Kennt verður á Optimist-, Laser- og Topper Topaz-báta. Farið verður í helstu atriði hvað varðar siglingar, öryggisatriði og almenna sjómennsku. Þetta námskeið er fyrir byrjendur sem og lengra komna. Nauðsynlegt er að mæta í fötum sem mega blotna, með hlý aukaföt, handklæði og nesti. Hámarksfjöldi er tíu þátttakendur á hverju námskeiði.

Verð á námskeiðunum er 8.000 kr. (innifalið í verði er námsefni).

  • 7. júní – 11. júní
  • 14. júní – 19. júní
  • 21. júní – 25.júní
  • 5. júlí – 9. júlí
  • 12. júlí – 16. Júlí
  • 19. júlí – 23. júlí
  • 26. júlí – 30. júlí

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast í síma 895 1551. Skráning er hafin og ganga skal frá greiðslu við skráningu.

Hægt er að skrá sig með því að fylla út skráningarformið.

Share this Post