Kænunámskeið 2013
Siglinganámskeið í Nauthólsvík
Í
sumar verða haldin námskeið fyrir krakka á aldrinum 10-15 ára. Mikil
áhersla verður lögð á siglingaíþróttina. Eftir námskeið gefst tækifæri á
reglulegum æfingum til skemmtunar eða keppni.
Meðal atriða sem farið verður yfir:
Öll
helstu atriði sem varða siglingar, öryggisatriði og almenna sjómennsku.
Þessi námskeið er fyrir byrjendur sem og lengra komna.
Bátakostur:
Kennt er á Optimist og Topper Topaz .
Tími:
Mæting kl. 13:00 og við erum búin kl. 16:00, mánudaga til föstudaga.
Staðsetning:
Nauthólsvík, Reykjavík. (húsið fyrir ofan Ylströndina)
Annað:
Hámarksfjöldi
á hvert námskeið: 16 þátttakendur.
Allir eiga að mæta með nesti nema á
föstudögum því þá grillum við gómsætar pylsur út í garði. (innifalið)
Fatnaður:
Regnfatnaður og strigaskór (sem mega blotna). Ekki koma með stígvél. Aukafatnaður, handklæði og sundföt eru einnig æskileg.
Verð:
Verð fyrir námskeiðið er 8.000 kr. (námsefni er innifalið).
Skráning
Tekið er við skráningu í gegnum formið hérna.
Þegar staðfesting berst skal ganga frá greiðslu með millifærslu, annars
er plássið ekki frátekið. Reikningur: 516-26-11609 Kennitala:
681174-0449
Hægt að senda fyrirspurn á: skraning@brokey.is og fá
upplýsingar í síma 895 1551
Boðið er upp á eftirfarandi námskeið:
10. júní – 14. júní
17. júní – 21. júní
24. júní – 28. júní
1. júlí – 5. júlí
15. júlí – 19. júlí
22. júlí – 26. júlí
Foreldrar eru hvattir til að skrá börn sín tímalega.