Síðsumarmótið!

/ júlí 27, 2006

Við minnum á Síðsumarmótið laugardaginn 29. júlí. Hér má lesa NOR-ið…



Tilkynning um keppni – NOTICE OF RACE (NOR)


SÍÐSUMARMÓT

29. júlí 2006

Siglingafélagið Ýmir stendur fyrir siglingakeppni fyrir kjölbáta laugardaginn 29. júlí 2006 samanber mótaskrá SÍL. Keppnin veitir stig í keppni um Íslandsbikar kjölbáta.


1.0 Fyrirkomulag keppni

Síðsumarmótið samanstendur af tveimur umferðum, þar sem keppt verður frá Reykjavík til Fossvogs í fyrri umferð, en sigld baujukeppni á Skerjafirði, Fossvogi og Arnarnesvogi í hinni síðari. Að lokinni keppni verður haldin grillveisla í félagsheimili Ýmis við Vesturvör, þar sem verðlaunaafhending mun fara fram og hinn glæsilegi Síðsumarbikar verður afhentur. Er þess óskað að keppnisbátum verði, að keppni lokinni, lagt við baujur framan við aðstöðu mótshaldara og mun mótshaldari sjá um flutning áhafna úr og í keppnisbáta.


2.0 Reglur

Keppt verður samkvæmt:

a) Kappsiglingareglum ISAF 2005 til 2008

b) Kappsiglingafyrirmælum SÍL

c) Kappsiglingafyrirmælum sem afhent verða á skipstjórafundi


3.0 Þátttökuréttur

Rétt til þátttöku hafa fullgildir félagar í siglingafélögum samkvæmt móta- og keppendareglum SÍL.


4.0 Auglýsingar

Auglýsingar eru leyfðar samkvæmt flokki C í Alþjóða Kappsiglingareglunum.


5.0 Forgjöf

Keppt verður skv. IRC forgjöf og skulu allir bátar framvísa gildu mælibréfi.


6.0 Skráning

Skráning skal fara fram með tölvupósti sendum Tryggvi M. Þórðarson á netfangið tryggvi hjá tryggvi.org, eða í síðasta lagi á skipstjórafundi.


7.0 Þátttökugjald

Þátttökugjald er kr. 1.500 pr. áhafnarmeðlim á keppnisbát. Grillveisla að lokinni keppni er innifalin í þátttökugjaldi.
Þátttökugjald skal greiðast í síðasta lagi á skipstjórafundi skv. 8. gr.


8.0 Tímaáætlun

Skipstjórafundur fer fram við laugardaginn 29. júlí 2006 kl. 9:00. Ræsing fyrri umferðar fer fram kl. 10:00. Ræsing seinni umferðar fer fram 30 mínutum eftir að síðasti bátur í fyrri umferð kemur í mark.


9.0 Stigakerfi

Notað verður lágstigakerfi skv. viðauka A í Alþjóðakappsiglingarreglunum.


10.0 Ábyrgð

Allir sem taka þátt í mótinu gera það á eigin ábyrgð. Keppnisstjórn, ásamt öllum þeim sem taka þátt í framkvæmd og skipulagingu mótsins firra sig allri ábyrgð á tjóni, hvort heldur muna- eða líkamstjóni, sem kann að verða vegna þátttöku í mótinu.


11.0 Verðlaun og verðlaunaafhendingar

Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í mótinu. Verðlaunapeningar sem afhentir verða miðast við 6 menn í áhöfn hvers báts.


12.0 Frekari upplýsingar

Frekari upplýsingar gefur Tryggvi M. Þórðarson í síma 962-3672 eða netfangið tryggvi hjá tryggvi.org. Keppnisstjórn verður tilkynnt síðar.


Kópavogi 21. júlí 2006

Siglingafélagið Ýmir

Share this Post