Þjóðhátíðarmót 2014
Að venju heldur Brokey þjóðhátíðarmót. Í ár verður þó aðeins vikið frá venju með þeim hætti að mótið telst hluti af Reykjavíkurmótinu 2014 (þriðjudagskeppni). Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjú sætin en einnig verða talin stig sem gilda til úrslita í Reykjavíkurmótinu.
TILKYNNING UM KEPPNI OG SKRÁNING
1. Reglur
Keppt verður samkvæmt:
a) Kappsiglingareglum ISAF 2013 til 2017
b) Kappsiglingafyrirmælum SÍL
c) Kappsiglingafyrirmælum mótsins
2. Auglýsingar
Auglýsingar eru leyfðar samkvæmt flokki C í Alþjóðakappsiglingareglunum.
3. Þátttökuréttur
Mótið er hluti af Reykjavíkurmótinu 2014 (þriðjudagskeppni) og telur til punkta í því móti. Rétt til þátttöku hafa fullgildir félagar í siglingafélögum samkvæmt móta- og keppendareglum SÍL. Ath. að kjölbátum sem skráðir eru sem dagbátar er heimil þátttaka.
4. Skráning
Skráningar skulu berast til keppnisstjórnar fyrir kl. 21:00 16. júní með athugasemdum við viðkomandi frétt á brokey.is. Taka þarf fram nafn báts, nafn skipstjóra, fjölda áhafnarmeðlima, seglanúmer og félag sem keppt er fyrir.
5. Þátttökugjald
Ekkert þátttökugjald..
6. Tímaáætlun
Þriðjudagur 17. júní
- Skipstjórafundur kl 12:30 (afhending gagna)
- Start er kl 13:30 (sjá keppnisfyrirmæli)
- Verðlaunaafhending kl 16:00
7. Mælingar
Keppt er samkvæmt NHC-forgjöf eins og hún reiknast eftir síðustu þriðjudagskeppni (10. júní 2014).
8. Kappsiglingafyrirmæli
Kappsiglingafyrirmæli verða afhent þri. 17. júní kl. 12:30.
9. Keppnisbraut
Keppt verður á sundunum við Reykjavík. Keppnisbraut verður kynnt á skipstjórnarfundi. Sigld verður ein umferð.
Keppnisstjórn getur stytt braut meðan á keppni stendur. Tilkynning um slíkt fer fram í VHF-talstöð á rás 6.
10. Samskipti
Bátar skulu ekki hafa samskipti með farsíma eða talstöð sem ekki eru aðgengileg öllum meðan þeir keppa nema í neyðartilvikum. Keppnisstjórn notar rás 6 til samskipta.
11. Verðlaun
Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin.
12. Ábyrgð
Allir sem taka þátt í mótinu gera það á eigin ábyrgð. Sjá reglu 4, ákvörðun um að keppa. Keppnisstjórn ásamt öllum þeim sem taka þátt í framkvæmd mótsins firra sig allri ábyrgð gagnvart tjóni sem kann að verða vegna þátttöku í mótinu.
13. Tryggingar
Hver bátur skal vera tryggður með gildri ábyrgðartryggingu sem nær til þess tjóns sem orðið getur.
14. Verðlaunaafhending
Verðlaun verða afhent kl. 16:00 í félagsheimili Brokeyjar á Ingólfsgarði.
15. Veitingar
Eftir verðlaunaafhendingu verður boðið upp á vöfflur og kaffi í félagsheimili Brokeyjar.
16. Frekari upplýsingar
Frekari upplýsingar veitir Jón Pétur Friðriksson í síma 694 2314 eða með tölvupósti á jp.fridriksson@gmail.com
Brokey – Siglingafélag Reykjavíkur
Ingólfsgarði, 101 Reykjavík
Sími: 552 8272