Aðalfundur 26. janúar 2020
Aðalfundur Siglingafélags Reykjavíkur – Brokeyjar verður haldinn í sal Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ), Engjavegi 6, 104 Reykjavík, sunnudaginn 26. janúar klukkan 11:00.
Við biðjum félagsmenn að fjölmenna og taka þátt í starfi félagsins.
Dagskráin er eftirfarandi:
- Setning aðalfundar og kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla stjórnar lögð fram.
- Skýrslur nefnda lagðar fram.
- Endurskoðaðir reikningar lagðir fram og útskýrðir.
- Umræða um skýrslu stjórnar, nefnda og reikninga.
- Reikningar bornir upp til samþykktar.
- Lagðar fram tillögur að lagabreytingum og bornar undir atkvæði.
- Kosning formanns
- Kosning fjögurra meðstjórnenda og tveggja varamanna sem skipta með sér verkum í samræmi við 10. grein.
- Kosning tveggja skoðunarmanna.
- Ákvörðun félagsgjalda.
- Önnur mál.
- Fundarslit.
Við bendum öllum þeim sem vilja bjóða sig fram til stjórnar eða formanns að hægt er að tilkynna framboð með því að senda tölvupóst á brokey@brokey.is. Það er samt ekki skilyrði fyrir framboði að tilkynna það fyrirfram og vel hægt að bjóða sig fram á fundinum sjálfum. Eins er hægt að gera athugasemd við þetta fundarboð á Fésbókarsíðu félagsins og láta vita af framboði.
Við hvetjum félagsmenn til að taka virkan þátt í starfi félagsins.
Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist til stjórnar eigi síðar en viku fyrir aðalfund. Þær öðlast gildi ef þær eru samþykktar með 2/3 greiddra atkvæða. Auðir og ógildir seðlar teljast ekki með.
Stjórnin