Borgin sigraði í breytilegri
Þetta var með réttu kallað breytileg átt, snérist 180 gráður með tveimur lognum inni á milli.
Fljótlega eftir ræsingu fór að bera á logninu og satt að segja voru horfurnar ekki bjartar. En eftir um tvo tíma skriðu bátar fyrir marklínu. Keppnisstjóri var Guðmundur Attenborough á Ögrun. Keppnin var svo svakalega róleg að keppnisstjórinn gleymdi sér við að fylgdist með tímgun og viðkomu mávastofnsins þannig að tímarnir eru fengnir með líkindareikningi og takið eftir … hann fékk sig ekki til að setja Ögrun í efsta sæti.
Krækja þurfti fyrir Bankabaujuna og eins og keppendur tóku eftir lá langur spotti úr baujunni sem betra er að forðast. Þetta er hinn svokallaði skuldahali.
Óli skælbrosandi að sigla í hina áttina.
Níu bátar tóku þátt og Ögrun í því sjöunda, aldrei verið svo neðarlega. Boðað hefur verið til krísufundar um borð í rauða bátnum vegna hrunsins. Guð blessi Ögrun.
(Úff … hversu lengi er hægt að gera sér mat úr hinu svokallaða hruni?)
Að sjálfsögðu spunnust miklar umræður um lífrænan ólíkindareikning Guðmundar.