Á morgun föstudaginn 5.6.2020 er stefnt að sjósetningu í Gufunesi. Kraninn er mættur kl 17. Hífingin kostar 20þús. Við biðjumst velvirðingar á stuttum fyrirvara. Það er enn verið að vinna í viðgerðum á bryggjunni en núna er í lagi að setja báta sunnan megin, þ.e. nær Hörpu. Það á eftir að skipta út bitum norðan megin og höldum við þeirri
Umhverfisstofnun, ásamt Reykjavíkurborg og landeiganda, kynnir hér með áform um friðlýsingu Lundeyjar í Kollafirði sem friðland, í samræmi við 49. gr. náttúruverndarlaga nr. 60/2013. Lundey liggur í innanverðum Kollafirði og felst markmið friðlýsingarinnar í að vernda mikilvæga sjófuglabyggð sem þar er auk sérstaks gróðurlendis. Í erindi í viðauka má nálgast frekari upplýsingar um svæðið, friðlýsingarflokk og hvernig skuli skila inn
Opið er fyrir umsóknir að bryggjuplássi fyrir seglbáta við Ingólfsgarð í sumar. Vinsamlega sendið tölvupóst á: brokey@brokey.is fyrir 30. apríl 2020 og pantið pláss. Tilgreina þarf nafn báts, stærð, tengiliður, símanúmer og kennitölu greiðanda. Gjaldskrá er einni á heimasíðu félagsins. Félagsmenn sem voru við bryggjuna í fyrra og senda umsókn hafa forgang. Stjórnin.
Í ljósi aðstæðna þá er ný dagsetning á kranadegi í Gufunesi í ár 9. maí og til vara 10. maí. Við í stjórninni biðjum félagsmenn að fara eftir þeim tilmælum sem gefin eru út varðandi fjölda á hverjum bát fyrir sig. Nánari tímasetning verður gefin út þegar nær dregur. Sjá má dagskrá 2020 hér: http://brokey.is/siglingakeppnir/dagskra/ Stjórnin.
Aðalfundur Kjölbátasambands Íslands verður haldinn í félagsaðstöðu siglingaklúbbsins Þyts í Hafnarfirði mánudaginn 16. mars kl. 20:00. Dagsskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin.
Á stjórnarfundi KBÍ sem haldin var 20. janúar 2020 var gerð svohljóðandi samþykkt: Þar sem núverandi stjórn ætlar ekki að gefa kost á sér til setu í stjórn KBÍ þá auglýsir hún hjá siglingaklúbbum landsins eftir áhugasömum mönnum og konum til að taka að sér að halda uppi merki KBÍ áfram. Ef ekki fást einhverjir til þessa þá verður KBÍ