Faxaflóamót – Tilkynning um keppni

22. – 24. júní 2012
Haldið af Siglingafélagi Reykjavíkur – Brokey
TILKYNNING UM KEPPNI OG SKRÁNING
1 Reglur
Keppt verður samkvæmt:
a) Kappsiglingareglum ISAF 2009 til 2012
b) Kappsiglingafyrirmælum SÍL
c) Kappsiglingafyrirmælum mótsins
2 Þátttökuréttur
Rétt til þátttöku hafa fullgildir félagar í siglingafélögum samkvæmt móta- og keppendareglum SÍL.
3 Auglýsingar
Auglýsingar eru leyfðar samkvæmt flokki C í Alþjóðakappsiglingareglunum.
4 Forgjöf
Keppt er samkvæmt IRC-forgjöf og skulu allir bátar framvísa gildu mælibréfi fyrir keppni. Bátar sem ekki eru með gilda IRC-forgjöf eru velkomnir með sem gestakeppendur, verða mældir og reiknaðir út frá líklegri IRC forgjöf, en koma ekki til álita við verlaunaúthlutun.
5 Skráning
Skráningar skulu berast til keppnisstjórnar fyrir kl. 21:00 21. júní með athugasemdum við viðkomandi frétt á brokey.is. Taka þarf fram nafn báts, nafn skipstjóra, fjölda áhafnarmeðlima, seglanúmer, forgjöf og félag sem keppt er fyrir. Sé bátur skráður seinna hækkar þátttökugjald um 2.000 kr.
6 Þátttökugjald
Þátttökugjald á hvern bát er kr. 5.000 og greiðist fyrir keppni á skipstjórafundi.
7 Keppnisbrautir
Siglt verður í einum spretti til Akraness fyrri daginn en flóknari braut seinni daginn. Brautir verða kynntar á skipstjórnarfundum fyrir hvora keppni.
8 Tímaáætlun
22. júní
Skipstjórnarfundur í félagsheimili Brokeyjar á Ingólfsgarði kl. 16:30
Fyrsta rásmerki frá Reykjavík kl. 17:25
23. júní
Skipstjórnarfundur, Akraneshöfn kl. 9:30
Fyrsta rásmerki frá Akranesi kl. 9:55.
Ef veður leyfir ekki keppni 22. eða 23. júní verður öll keppnin haldin 24 júní og aðlöguð að aðstæðum.
9 Stigakerfi
Notað verður lágstigakerfi samkvæmt viðauka A í Alþjóðakappsiglingareglunum.
10 Ábyrgð og tryggingar
Allir sem taka þátt í mótinu gera það á eigin ábyrgð. Keppnisstjórn ásamt öllum þeim sem taka þátt í framkvæmd mótsins firra sig allri ábyrgð gagnvart tjóni sem kann að verða vegna þátttöku í mótinu. Hver bátur skal vera tryggður með gildri ábyrgðartryggingu sem nær til þess tjóns sem orðið getur.
11 Verðlaun
Fyrir fyrri keppnisdaginn Reykjavík – Akranes, Sprettur verður veittur Skagabikarinn og verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin. Fyrir seinni legginn Akranes – Reykjavík, verður veittur bikar og verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin. Fyrir samanlagðan árangur verður veittur bikar og verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin. Samanlagður árangur veitir stig til Íslandsbikars.
12 Verðlaunaafhending
Verðlaun verða afhent strax eftir lok mótsins í félagsheimili Brokeyjar.
13 Veitingar
Eftir seinni keppnisdag verður boðið upp á mat í félagsheimili Brokeyjar.
14 Frekari upplýsingar
Frekari upplýsingar eru veittar á brokey@brokey.is