Brokey heldur utan um bryggjrustæði við flotbryggju félagsins við Ingólfsgarð. Skútueigendur sem hafa áhuga á bryggjustæði yfir sumartímann er bent á að senda póst á brokey@brokey.is.

Bryggjustjóri Brokeyjar þjónustar gestaskútur sem leggjast við flotbryggjuna og er til taks flesta daga sumarsins. Árni Friðrik Guðmundsson er bryggjustjóri sumarið 2023.