Hátíð hafsins

/ maí 30, 2012

Haldið af Siglingafélagi Reykjavíkur, Brokey á sundunum við Reykjavík 2. júní 2012

Tilkynning um keppni

smella á „Nánar“ til að lesa meira og skrá sig.

1 Reglur
Keppt verður samkvæmt:
 a) Kappsiglingareglum ISAF 2009 til 2012. b) Kappsiglingafyrirmælum SÍL
. c) Kappsiglingafyrirmælum mótsins.

2 Auglýsingar
Auglýsingar eru leyfðar samkvæmt flokki C í Alþjóða kappsiglingareglunum.

3 Þátttökuréttur
Rétt til þátttöku hafa fullgildir félagar í siglingafélögum samkvæmt móta- og keppendareglum SÍL.

4 Þátttökugjald
Þátttökugjald á hvern þátttakanda (hvern áhafnarmeðlim) verður kr. 500,- Þátttökugjald verður innheimt á skipstjórnarfundi.

5 Tímaáætlun
2. júní:
Móttaka þátttökugjalds og afhending kappsiglingafyrirmæla frá kl. 12:30 – 13:00. Skipstjórnafundur kl. 13:00. Viðvörunarmerki kl. 13:55
Bátar sem ekki ná að ljúka keppni innan klukkustundar eftir að fyrsti bátur kemur í mark falla sjálfkrafa úr keppni.
Tímasetningar geta breyst og eru tilkynntar á skipsstjórafundi, eða gegnum talstöð (rás 6 á VHF) ásamt merkjafánum. Keppni getur verið felld niður eða frestað til annars dags samkvæmt ákvörðun keppnisstjórnar.

6 Mælingar
Keppt verður samkvæmt IRC forgjöf og skal framvísa gildu mælibréfi fyrir alla báta.

7 Kappsiglingafyrirmæli
Kappsiglingafyrirmæli verða birt á skipstjórafundi.

8 Keppnisbraut
Keppt verður á sundunum við Reykjavík. Keppnisbraut verður kynnt á skipstjórnarfundi.
Sigld verður ein umferð.
Keppnisstjórn getur stytt braut meðan á keppni stendur. Tilkynning um slíkt fer fram í VHF-talstöð á rás 6.

Ef ræst er innan Reykjavíkurhafnar er eðlileg stefna beint út um hafnarkjaftinn. Bátar skulu ekki lúffa (regla 11) eða beita kappsiglingareglum með öðrum hætti til að sigla í veg fyrir aðra eða neyða þá til stefnubreytingar að óþörfu heldur sigla beint út um hafnarkjaftinn og gefa öðrum rúm til þess sama. Þegar aftasti hluti aftara báts, báta sem skarast, er kominn út fyrir hafnarkjaftinn þá gilda kappsiglingareglurnar með eðlilegum hætti.

9 Skráning
Skráningar skulu berast til keppnisstjórnar fyrir kl. 12:00 þann 1. júní með athugasemdum hér við þessa frétt á brokey.is eða með því að senda tölvupóst á brokey@brokey.is (sjá grein 14). Taka þarf fram nafn báts, nafn skipstjóra, fjölda áhafnarmeðlima, seglanúmer, forgjöf og félag sem keppt er fyrir.

10 Stigakerfi
Notað verður lágstigakerfi samkvæmt viðauka A í alþjóðakappsiglingareglunum.

11 Verðlaun
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin.

12 Verðlaunaafhending
Verðlaunaafhending fer fram í félagsheimili Brokeyjar á Ingólfsgarði strax og úrslit verða ljós að lokinni keppni.

13 Ábyrgð og tryggingar
Allir sem taka þátt í mótinu gera það á eigin ábyrgð. Keppnisstjórn ásamt öllum þeim sem taka þátt í framkvæmd mótsins firra sig allri ábyrgð gagnvart tjóni sem kann að verða vegna þátttöku í mótinu.
Hver bátur skal vera tryggður með gildri ábyrgðartryggingu sem nær til þess tjóns sem orðið getur.

14 Frekari upplýsingar
Frekari upplýsingar fást með fyrirspurn á viðkomandi frétt á brokey.is

Share this Post