Heyrst hefur…

/ ágúst 9, 2007

{mosimage}… að Besta, Aquarius og Aría fóru í hífingu og þvoðu sér að neðan.

… að áhöfnin á Sygin er að æfa á fullu og búin að fá forgjöf.

… að Sigurborg sé búin að fá forgjöf og ætli að keppa.

… að Eva II stefni á að keppa.

… að Haffi hafi hækkað prísinn fyrir að stýra Aquariusi, því Íslandsmeistaramótið í götuhjólreiðum fer fram um helgina og hann þarf að hvíla sig strákurinn ætli hann að eiga einhvern sjens þar.

… að nýju baujurnar séu þegar farnar að setja svip sinn á Sundin.

… að á stefninu á bátnum þínum muni standa SPRON.

… og sést til Þernu í Reykjavíkurhöfn.

Share this Post