Íslandsmót kæna – NOR

/ ágúst 8, 2012

Brokey heldur Íslandsmót kæna helgina 11. og 12. ágúst næstkomandi. Keppt verður í sjö flokkum: Optimist A og B, Topper Topaz, Laser Standard, Radial og 4,7 og opnum flokki.

Keppnin fer fram í Skerjafirði og innfjörðum hans.

Smellið á ‘Nánar’ til að skoða Tilkynningu um keppni.

Íslandsmót kæna 2012

11. og 12. ágúst 2012

Siglingafélag Reykjavíkur – Brokey

Keppt verður á Skerjafirði og innfjörðum hans

Tilkynning um keppni

1. Reglur
Keppt verður samkvæmt:
a. Kappsiglingareglum ISAF
b. Kappsiglingafyrirmælum SÍL
c. Kappsiglingafyrirmælum mótsins

2. Auglýsingar
a. Auglýsingar verða leyfðar samkvæmt flokki C í Alþjóða kappsiglingareglunum
b. Auglýsingar sem keppnishaldari útvegar kann að þurfa að sýna á bátum eða búnaði

3. Þátttökuréttur
Rétt til þátttöku hafa fullgildir félagar í siglingafélögum samkvæmt móta- og keppendareglum SÍL.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
a. Optimist:
   a. A flokkur fyrir þá sem tekið hafa þátt Íslandsmótum A flokks, eða lent ofan við miðju í Íslandsmóti B flokks
   b. B flokkur fyrir aðra 
a. Laser standard 
b. Laser radial 
c. Laser 4,7 
d. Topper Topaz 
e. Opnum flokki fyrir aðrar kænur en Optimist og verður þar keppt eftir forgjöfum sem samþykktar hafa verið af SÍL

Flokkar geta breyst samkvæmt ákvörðun keppnisstjórnar og verður þá tilkynnt fyrir skipstjórafund.

Allar kænur skulu bera seglanúmer samkvæmt reglum SÍL.

4. Skráning
Skráningar berist til keppnisstjórnar fyrir kl. 21:00 þriðjudaginn 7. ágúst með tölvupósti á brokey@brokey.is. Taka þarf fram nafn keppenda, seglanúmer báts, bátstegund, félag sem keppt er fyrir og flokki. Þó er hægt er að skrá allt fram að skipstjórafundi, en þá hækkar þátttökugjald.

Greiða má þátttökugjald inn á reikning 516-26-11609 Kt: 681174-0449 og senda tilkynningu á brokey@brokey.is.

5. Þátttökugjald
Þátttökugjald á hvern keppanda er kr. 3.500. Gjaldið hækkar í kr. 4.500 ef skráning berst eftir kl 21:00 þriðjudaginn 7. ágúst.

6. Tímaáætlun
11. ágúst:
   Móttaka þátttökugjalds og afhending kappsiglingafyrirmæla frá kl. 08:30 – 09:00
   Skipstjórafundur kl. 09:00
   Viðvörunarmerki fyrir fyrstu keppni kl. 10:00
   Gert verður stutt hlé þar sem keppendur geta farið í land til að borða hádegishressingu. Um kvöldið verður grillað og er það innifalið í þátttökugjaldi

12. ágúst:
   Skipstjórafundur kl. 09:00
   Viðvörunarmerki fyrir fyrstu keppni kl. 10:00

Þessa tvo daga er stefnt að því að sigla 5 til 10 umferðir.

7. Kappsiglingafyrirmæli
Siglingafyrirmæli verða afhent fyrir skipstjórafund á fyrsta keppnisdegi.

8. Keppnissvæði
Keppt verður á Skerjafirði og innfjörðum hans.

9. Keppnisbrautir
Keppnisbrautum verður lýst í kappsiglingafyrirmælum.

10. Stigakerfi
a. Notað verður lágstigakerfi samkvæmt viðauka A í Alþjóða-kappsiglingareglunum
b. Ef kepptar verða þrjár eða færri umferðir, reiknast allar til stiga, verði sigldar fleiri umferðir kastar hver keppandi sinni lökustu keppni

11. Samskipti
Bátar skulu ekki hafa samskipti með farsíma eða talstöð sem ekki eru aðgengileg öllum meðan þeir keppa nema í neyðartilvkum. Keppnisstjórn notar rás 71 til samskipta.

12. Bátar þjálfara og áhorfenda
Bátar þjálfara og áhorfenda verða leyfðir á afmörkuðum svæðum við keppnissvæðið. Nánari upplýsingar verða gefnar við afhendingu siglingafyrirmæla 11. ágúst.

13. Verðlaun
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í hverjum flokki ásamt því að sigurvegarinn hlýtur farandbikar og nafnbótina „Íslandsmeistari viðkomandi flokks 2012“.

Samkvæmt kappsiglingafyrirmælum SÍL er ekki keppt til íslandsmeistaratitils nema fimm bátar hefji keppni í viðkomandi flokki.

14. Verðlaunaafhending
Verðlaunaafhending fer fram í félagsheimili Brokeyjar í Nauthólsvík strax og úrslit verða ljós að lokinni keppni.

15. Ábyrgð
Allir sem taka þátt í mótinu gera það á eigin ábyrgð. Sjá reglu 4, ákvörðun um að keppa. Keppnisstjórn ásamt öllum þeim sem taka þátt í framkvæmd mótsins firra sig allri ábyrgð gagnvart tjóni sem kann að verða vegna þátttöku í mótinu.

16. Frekari upplýsingar
Frekari upplýsingar fást hjá Ólafi Má í síma 896 3565 eða með tölvupósti á brokey@brokey.is  

Siglingafélag Reykjavíkur – Brokey Nauthólsvík

Share this Post