Námskeið 2009

/ mars 6, 2009

Hásetanámskeið Brokeyjar

Í sumar heldur siglingafélagið Brokey verkleg siglinganámskeið fyrir fólk á öllum aldri. Námskeiðið miðar að því að nemendur verði hæfir sem hásetar á seglbátum.

Meðal atriða sem verður farið yfir eru:

  • Stjórnun segla með tilliti til vindstefnu.
  • Að stýra eftir vindi og áttavita.
  • Helstu umferðarreglur á sjó.
  • Notkun björgunarvesta og líflína.
  • Meðhöndlun reipa og helstu hnútar.
  • Öryggistækin um borð neyðarblys, kastlína, slökkvitæki og talstöð.
  • Að bregðast við ef maður fellur fyrir borð.

Kennt er mánudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöld, samtals um 10 klukkustundir. Nemendur skulu vera mættir á Ingólfsgarði klukkan 18:00. Ef veður hamlar er föstudagskvöldið haft til vara. Nemendur skulu klæða sig vel og muna að stígvél eru betri en skór (helst með hvítum botni).

Kennt er á kjölbát félagsins, Sigurvon, sem er af tegundinni Secret 26.

Hámarksfjöldi á hvert námskeið: 6 þáttakendur. Verð fyrir námskeiðið er 25.000 kr.

Boðið er upp á námskeið eftirfarandi daga:

  • 18. maí – 21. maí
  • 25. maí – 28. maí
  • 1. júní – 4. júní
  • 8. júní – 11. júní
  • 22. júní – 25. júní
  • 29. júní – 2. júlí
  • 6. júlí – 9. júlí
  • 13. júlí – 16. júlí
  • 20. júlí – 23. júlí
  • 10. ágúst  – 14. ágúst
  • 17. ágúst – 21. ágúst
  • 24. ágúst – 28. ágúst

Staðsetning:

Brokey, Ingólfsgarður, Reykjavíkurhöfn

Skráning

Skráning er hafin og er hægt að skrá sig með því að fylla út skráningarformið.
Þegar staðfesting berst skal ganga frá greiðslu með millifærslu. Annars er plássið ekki frátekið.
Einnig er hægt að senda fyrirspurn á: skraning@brokey.is eða í síma 895 1551

Share this Post