NOR – Hátíð hafsins

/ maí 28, 2014

31. maí 2014
Haldið af Siglingafélagi Reykjavíkur – Brokey

TILKYNNING UM KEPPNI OG SKRÁNING

1. Reglur Keppt verður samkvæmt: a) Kappsiglingareglum ISAF 2013 til 2017 b) Kappsiglingafyrirmælum SÍL c) Kappsiglingafyrirmælum mótsins

2. Auglýsingar Auglýsingar eru leyfðar samkvæmt flokki C í Alþjóðakappsiglingareglunum.

3. Þátttökuréttur Rétt til þátttöku hafa fullgildir félagar í siglingafélögum samkvæmt móta- og keppendareglum SÍL. Ath. að kjölbátum sem skráðir eru sem dagbátar er heimil þátttaka.

4. Skráning Skráningar skulu berast til keppnisstjórnar fyrir kl. 21:00 30. maí með athugasemdum við viðkomandi frétt á brokey.is. Taka þarf fram nafn báts, nafn skipstjóra, fjölda áhafnarmeðlima, seglanúmer, forgjöf og félag sem keppt er fyrir.

5. Þátttökugjald Ekkert þátttökugjald.

6. Tímaáætlun Afhending kappsiglingafyrirmæla frá kl. 12:30 – 13:00. Skipstjórnarfundur í félagsheimili Brokeyjar á Ingólfsgarði kl. 13:00 Viðvörunarmerki kl. 13:55

7. Mælingar Keppt er samkvæmt IRC-forgjöf og skulu allir bátar framvísa gildu mælibréfi fyrir keppni.

8. Kappsiglingafyrirmæli Kappsiglingafyrirmæli verða afhent  kl. 12:30 – 13:00.

9. Keppnisbraut Keppt verður á sundunum við Reykjavík. Keppnisbraut verður kynnt á skipstjórnarfundi. Sigld verður ein umferð. Keppnisstjórn getur stytt braut meðan á keppni stendur. Tilkynning um slíkt fer fram í VHF-talstöð á rás 6. Ef ræst er innan Reykjavíkurhafnar er eðlileg stefna beint út um hafnarkjaftinn. Bátar skulu ekki lúffa (regla 11) eða beita kappsiglingareglum með öðrum hætti til að sigla í veg fyrir aðra eða neyða þá til stefnubreytingar að óþörfu heldur sigla beint út um hafnarkjaftinn og gefa öðrum rúm til þess sama. Þegar aftasti hluti aftara báts, báta sem skarast, er kominn út fyrir hafnarkjaftinn þá gilda kappsiglingareglurnar með eðlilegum hætti.

10. Samskipti Bátar skulu ekki hafa samskipti með farsíma eða talstöð sem ekki eru aðgengileg öllum meðan þeir keppa nema í neyðartilvikum. Keppnisstjórn notar rás 6 til samskipta.

11. Verðlaun Veitt verða  verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin.

12. Ábyrgð Allir sem taka þátt í mótinu gera það á eigin ábyrgð. Sjá reglu 4, ákvörðun um að keppa. Keppnisstjórn ásamt öllum þeim sem taka þátt í framkvæmd mótsins firra sig allri ábyrgð gagnvart tjóni sem kann að verða vegna þátttöku í mótinu.

13. Tryggingar Hver bátur skal vera tryggður með gildri ábyrgðartryggingu sem nær til þess tjóns sem orðið getur.

14. Verðlaunaafhending Verðlaun verða afhent strax eftir lok keppni í félagsheimili Brokeyjar.

15. Veitingar Eftir verðlaunaafhendingu  verður boðið upp á vöfflur og kaffi í félagsheimili Brokeyjar.

16. Frekari upplýsingar Frekari upplýsingar veitir Jón Pétur Friðriksson í síma 694 2314 eða með tölvupósti á jp.fridriksson@gmail.com   Brokey – Siglingafélag Reykjavíkur Ingólfsgarði, 101 Reykjavík Sími: 552 8272

Share this Post