Á hverju sumri stendur félagið fyrir fjölda námskeiða í kænusiglingum fyrir börn, unglinga (9 ára og eldri). Í Nauthólsvík er kænustarf félagsins aðalega á sumrin en það er ýmiss félagsskapur allt árið um kring og þar fá börn og unglingar þekkingu og færni í að sigla kænum undir handleiðslu sérmenntaðra þjálfara.

Siglingaskóli í Nauthólsvík

Í kænuhóp Brokeyjar æfir öflugur hópur ungmenna sem stundar kænusiglingar allt sumarið undir handleiðslu þjálfara.
Boðið er upp á tveggja vikna byrjendanámskeið og svo æfingar allt sumarið.

Skráning hér:  https://www.sportabler.com/shop/brokey

Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á skraning (hjá) brokey.is

Um starfsemina

Á æfingum er lögð áhersla á að öllum þátttakendum líði vel og að dagskrá námskeiðsins sé fjölbreytt, þroskandi og skemmtileg. Mikil áhersla er á öryggi þátttakenda og starfsfólks. Siglingar í Nauthólsvík eru háðar duttlungum veðurguðanna og því getur dagskráin tekið breytingum. Við förum samt út á sjó hvernig sem viðrar. Mikilvægt er að mæta stundvíslega því ef hópurinn er komin út á sjó er ekki víst að hægt sé að snúa við til að ná í þann sem er of seinn. Farið yfir helstu atriði siglinga, öryggisatriði og almenna sjómennsku. Þessi námskeið henta bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Kennsla er samkvæmt námskrá Siglingasambands Íslands og miðast við að nemendur geti siglt kænu einir og með öðrum undir eftirliti að námskeiði loknu. Kennt er á eins- og tveggja manna kænur.

Tímasetningar

Æfingar á sumarönn hefjast 7. maí og lýkur 23. ágúst. (æfingum fækkar í ágúst)Byrjendahópur: kl. 9:00-12:00 (13. júní, 20. júní, 4. júlí, 18 júlí og 25. júlí) Námskeið á Optimist: kl. 13:00-15:30 (13. júní, 20. júní, 4. júlí, 18 júlí og 25. júlí)

Ævintýrahópur: 13:00 – 15:30 alla virka daga í júní og júlí.
Æfingahópur: 16:00 til kl. 19:00, mánudaga til föstudaga

Nesti

Allir eiga að mæta með vatnsbrúsa og nesti.

Öryggisbúnaður

Allir þátttakendur á námskeiðum fá björgunarvesti við hæfi. Þjálfari á öryggisbát fylgir nemendum þegar farið er út á sjó.

Við mælum með eftirfarandi fatnaði:

  • Jakki gjarnan vind- og vatnsheldur (t.d. venjulegur regnjakki)
  • Buxur gjarnan vind- og vatnsheldur (t.d. venjulegar regnbuxur)
  • Peysa gjarnan þykk flís/ullarpeysa
  • Buxur sniðugt er að vera í flís eða nælon íþróttabuxum. Helst ekki gallabuxur
  • Skór eða sandalar, en ekki stígvél því ef þau fyllast af vatni geta þau sokkið og týnst í sjónum
  • Síðermabolur t.d. ull eða gerviefni, ekki bómull
  • Síðar nærbuxur t.d. ull
  • Stuttermabolur t.d. æfingabolur úr glansefni, ekki bómull
  • Sokkar t.d. ullar- eða göngusokkar úr gerfiefnis- ullarblöndu. Séu börnin í góðum sokkum verður þeim minna kalt ef þau blotna í fæturnar
  • Einnig: húfa, vettlingar, handklæði, aukaföt.
  • Poki/taska fyrir blaut föt.

Blautgalli er ekki nauðsynlegur en mjög hentugur. Hægt er að fá blautgalla, blautskó og hanska sem henta í kænusiglingar hjá Hafsport (hafsport.is) og GG Sjósport (ggsport.is).

Notuð föt er oft hægt að finna á Facebook-hópnum „Notaður siglingabúnaður“ og bland.is.

Athugið!

Mjög mikilvægt er að merkja öll föt með nafni og síma eigenda sinna þar sem nokkuð hefur verið um að föt gleymist.