Smá raunveruleikatékk

/ nóvember 3, 2008

Íslensk kona hefur verið að styrkja námsmann í Uganda sem „óvænt
varð á vegi hennar“ eins og hún orðaði það.

Hún var að velta því fyrir sér hvort rétt væri að
reyna að segja honum frá gangi mála hér á landi, þ.e. kreppunni og
öllu því.

Og það gæti því miður reynst nauðsynlegt að skera
eitthvað niður styrkinn vegna hins breytta ástands hérna megin. Það
eru nefnilega tiltölulega litlar líkur á því að fréttir af Íslenska
skipbrotinu hafi borist alla leið til hans þarna í Entebbe. Og svo er
alls ekki víst að hann skilji alvöru málsins.

En ef reynt væri að útskýra hið Íslenska kreppuástand fyrir
honum sem virðist ætla að fara langt með að sliga þjóðina einhver
þó nokkur ár inn í framtíðina, gæti það samtal orðið á
eftirfarandi nótum.

*Heyrðu félagi, það er úr vöndu að ráða. Íslenska þjóðin er
gjaldþrota!

Hvað segirðu, en leiðinlegt að heyra, eigið þið þá ekki fyrir
baunum og maís?

*Jú reyndar eru búðir fullar af mat og enginn vöruskortur. Auk þess er sjórinn fullur af fiski allt í kringum landið.

Hvað segirðu, þið eigið þá mat. Það er gott. En eigið þiðþá
ekki þak yfir höfuðið lengur!

*Jú við eigum reyndar íbúð eins og flestir og það eru fáir
heimilislausir á Íslandi.

En hvað segirðu mér þá? Gengur plága yfir landið, eru allir veikir
og heilbrigðiskerfið lamað?

*Nei nei reyndar ekki, við fáum nánast ókeypis læknaþjónustu og erum
með eitt besta heilbrigðiskerfi í heiminum.

Nú jæja. Það var gott að heyra. En eru þá skólarnir að loka og fá
kannski ekki allir tækifæri til að læra að lesa lengur og sérstaklega ekki konur.

*Jú reyndar er 99,9% læsi á Íslandi og menntakerfið er með þeim bestu í heiminum, margir
með háskólagráður og konur jafnvel frekar en karlar.

Það er nú gott, en þið verðið þá að passa er að lenda ekki í
stríði við nágrannaþjóðir ykkar.

*Uuuu við erum reyndar ekki með her og teljumst nú frekar friðsæl
þjóð. En við þurfum bara að hlusta á bullið og
stríðsyfirlýsingarnar í ensku fíflum Gordon Brown og Alistair Darling. Það er það sem
við munum líklega komst næst því að fara í stríð.

Ok. Segðu mér nú samt ekki að þið komist ekki í hreint vatn.

*Við eigum reyndar besta vatn í heimi í svo miklu magni að við flytum það út.

Nú, er vegakerfið þá ónýtt? Hérna í Afríku ganga allir eða nota
asna og stundum reiðhjól. Það eru líka til strætisvagnar hérna, en
þeir eru alltaf yfirfullir.

Eru kannski strætóarnir hjá ykkur hættir að ganga?

*Neeee… Það er verið að ræða um hvort almenningssamgöngur hér
eigi að vera ókeypis, en það eru flestallir vegir malbikaðir og
næstum allir eru á nýlegum bílum.

Eigið þið þá enga peninga til að gera ykkur glaðan dag? Ég meina,
þú sagðir að þjóðin væri gjaldþrota.

*Flestir eiga reyndar einhvern sparnað á bókum þó sumir hafi tapað
honum eða hluta hans síðustu daga. Það verður alla vega erfitt að
kaupa stærri flatskjái og utanlandsferðunum verður að fækka.

Já, ég á kannski einhvern tíma eftir að fara til útlanda, en ég er
nú líka frá Uganda. Hefur kannski enginn vinnu og þurfið þið núna
öll að betla?

*Neiiij…! Atvinnuleysið er um 2% en við verðum að flytja Pólverjana
aftur heim og fara sjálf að vinna vinnuna sem þeir unnu.

Hmmm… Svo þið hafið peninga, mat, húsaskjól, heilbrigðiskerfi,
menntakerfi, búið við frið, eigið nóg hreint vatn og samgöngur eru
góðar.

Segðu mér, hvert var vandamálið aftur?

Share this Post