Þriðjudagsmyndir
{mosimage}
Fínn vindur og hann hélst… og hélst þurr…. Hér eru nokkrar myndir…
{mosimage}
Brautin var í boði Ögrunar, öfugur Jói með þríhyrningi í lokin. Skemmtileg hefð sem er að skapast með þennan þríhyrning. Í fyrsta lagi er hann praktískur, hægt að klippa hann af ef vindur dettur niður. Í öðru lagi er hann skemmtilegur, nóg að gera fyrir áhafnirnar og í þriðja lagi erum við sýnilegri frá landi.
En það var Niels keppnisstjóri, á títtnefndri Ögrun, sem tók nokkrar af þessum myndum og kunnum við honum bestu þakkir.
{mosimage}
Aquarius…
{mosimage}
… tekur öfugu megin framúr (hlémegin). Fyrsti leggurinn upp að Bankabauju var ansi erfiður þar sem vindur (aflandsvindur) snérist fram og til baka.
{mosimage}
durumm…
{mosimage}
… durumm…
{mosimage}
… vússs…
{mosimage}
… hvur andsk….!!!
{mosimage}
Þekking Reynsla Þjónusta. Það kom svo mikil matarlykt þegar þeir áttu leið hjá að maður hélt þeir kæmu færandi hendi. Talandi um það. Bestan gerði tilraun til að drekkja áhöfninni á Dögun í rauðvíni, kastaði rauðvínsbelg í átt að Dögun. Vindur var fullhvass, Seifur fékk guðaveigarnar og því varð Dögun af sopanum góða.
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
Sigurvegarar keppninnar var áhöfnin á Sygin. Annars var keppnin býsna jöfn, fjórir bátar inn á sömu mínútu. Ef þetta forgjafarsístem er ekki snilld…
Úrslitin koma á sinn stað. En við lýsum eftir úrslitum úr síðustu keppni, þessari sem Aquarius sá um. Aquariusar mega gjarnan senda okkur úrslitin…