Þjóðhátíðarmót 2013

/ júní 13, 2013

Hið árlega þjóðhátíðarmót Brokeyjar verður að vanda haldið í Reykjavík 17. júní næstkomandi. Sjá tilkynningu um keppni undir „Nánar“ hér fyrir neðan.


ÞJÓÐHÁTÍÐARMÓT

17. júní 2013

Haldið af Siglingafélagi Reykjavíkur, Brokey á sundunum við Reykjavík

TILKYNNING UM KEPPNI

1 Reglur
Keppt verður samkvæmt:
a) Kappsiglingareglum ISAF 2009 til 2012
b) Kappsiglingafyrirmælum SÍL
c) Kappsiglingafyrirmælum mótsins.

2 Auglýsingar
Auglýsingar eru leyfðar samkvæmt flokki C í Alþjóða kappsiglingareglunum.

3 Þátttökuréttur
Rétt til þátttöku hafa fullgildir félagar í siglingafélögum samkvæmt móta- og keppendareglum SÍL.

4 Þátttökugjald
Þátttökugjald er kr. 500 á hvern áhafnarmeðlim.

5 Tímaáætlun

17. júní:

  • Afhending kappsiglingafyrirmæla  kl. 14:30.
  • Skipstjórnafundur kl. 14:30.
  • Viðvörunarmerki kl. 14:55

Tímasetningar geta breyst og eru tilkynntar á skipstjórafundi, eða gegnum talstöð (rás 6 á VHF) ásamt merkjafánum. Keppni getur verið felld niður eða frestað til annars dags samkvæmt ákvörðun  keppnisstjórnar.

6 Mælingar
Keppt verður samkvæmt IRC forgjöf og skal framvísa gildu mælibréfi fyrir alla báta.

7 Kappsiglingafyrirmæli
Kappsiglingafyrirmæli verða afhent á skipstjórafundi.

8 Keppnisbraut
Keppt verður á sundunum við Reykjavík. Keppnisbrautir verða kynntar á skipstjórnarfundi. Stutt og skemmtileg braut innan við Engey. Fjölskylduvæn keppni.

Keppnisstjórn getur breytt braut, stytt, eða breytt stefnu að næsta merki. Slík tilkynning fer fram í VHF talstöð á rás 6.

9 Skráning
Skráningar skulu berast til keppnisstjórnar fyrir kl. 12:00 17. júní með athugasemdum við viðkomandi frétt á brokey.is eða með tölvupósti til brokey@brokey.is (sjá grein 14). Taka þarf fram nafn báts, nafn skipstjóra, fjölda áhafnarmeðlima, seglanúmer, forgjöf og félag sem keppt er fyrir.

10 Stigakerfi
Keppnin veitir ekki stig til Íslandsbikars.

11 Verðlaun
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin.  Einnig verða veitt vegleg útdráttarverðlaun.

12 Verðlaunaafhending
Verðlaunaafhending fer fram í félagsheimili Brokeyjar á Ingólfsgarði strax og úrslit verða ljós að lokinni keppni.

13 Ábyrgð og tryggingar
Allir sem taka þátt í mótinu gera það á eigin ábyrgð. Keppnisstjórn ásamt öllum þeim sem taka þátt í framkvæmd mótsins firra sig allri ábyrgð gagnvart tjóni sem kann að verða vegna þátttöku í mótinu.

Hver bátur skal vera tryggður með gildri ábyrgðartryggingu sem nær til þess tjóns sem orðið getur.

14 Frekari upplýsingar
Frekari upplýsingar fást með fyrirspurn við viðkomandi frétt eða tölvupósti til brokey@brokey.is

Share this Post